30.07.2007 11:05
Bourke`s Parrot
Var að setja inn myndir af nýju heimilismeðlimunum og hér kemur smá lýsing á tegundinni:
Lýsing: Enni og smárákir yfir augun bláar; nef- og augnsvæði og fremri hluti kinna hvítleitur; kinnar og háls annars daufbleikur, hver fjöður með brúnni brún; bringufjaðrir brúnleitar með breiðri bleikri brún; kviður bleikur; höfuð, bak og vængblöðkur olivíubrúnar með fölri brún; neðra bak og efri hluti miðstélblaðka svarbrúnar; lendar og undirstélsblöðkur fölbláar; undirhlið stéls daufhvít; efri hlið miðstélsfjaðra svarbrúnar, daufblá á ytri fjöðrunum; hvítur litur á undirvæng daufur eða vantar; goggur svartleitur; augu dökkbrún; fætur dökkbrúnir.
Óþroskaður fuglar daufari og án bláa ennisbandsins; hvíta vængbandið vantar iðulega á karlfuglum en meira áberandi í kvenfuglinum; neðri goggur gulleitari í mjög ungum fuglum; fá fullorðinsfjaðrir við 8 mánaða aldur.
Lengd: 19 cm.
Lífslíkur: 30-35 ár.
Um kynin: Kvenfugl eins og karlfugl nema almennt daufari litir, einkum blái ennisliturinn; bleika brúnin á bringufjöðrum mjórri; hvíta vængbandið til staðar.
Uppruni: Þurr og hálfþurr svæði í suður- og miðhluta Ástralíu.
Um fuglinn: Hljóðlátur fugl sem er mest virkur snemma morguns og síðla kvölds. Þægilegur og fallegur fugl. Nagar lítið sem ekkert. Friðsamur og getur verið í búri með öðrum smáfuglum. Viðkvæmur fyrir fyrir kulda og dampi. Gott að ormahreinsa einu sinni til tvisvar á ári vegna þess að þeir eru mikið á jörðinni.
Hávaðasemi: Hljóðlátur fugl.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Nokkuð algengur núna en honum var nánast útrýmt á fimmta áratug 20.aldar. Verndaður í Ástralíu.

Flettingar í dag: 20
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 50
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 138722
Samtals gestir: 23087
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 07:17:29